Project Gutenberg's Rímur af Grámanni í Garðshorni, by Jón Hjaltason

This eBook is for the use of anyone anywhere at no cost and with
almost no restrictions whatsoever.  You may copy it, give it away or
re-use it under the terms of the Project Gutenberg License included
with this eBook or online at www.gutenberg.org


Title: Rímur af Grámanni í Garðshorni

Author: Jón Hjaltason

Release Date: July 24, 2007 [EBook #22137]

Language: Icelandic

Character set encoding: UTF-8

*** START OF THIS PROJECT GUTENBERG EBOOK RÍMUR AF GRÁMANNI Í GARÐSHORNI ***




Produced by Jóhannes Birgir Jensson





RÍMUR
AF
GRÁMANNI Í GARĐSHORNI

KVEĐNAR AF
JÓNI HJALTASYNI
Á ÁRMÚLA


ÍSAFJÖRĐUR
KOSTNAĐARMAĐUR: HJALTI JÓNSSON
PRENTSMIĐJA ÞJÓĐVILJANS UNGA
1895

1. ríma.

Óbreytt ferskeytt.

  1. Dagur grímu fælir frá, fuglar syngja taka; rístu hani Þundar þá, þér er mál að kvaka.
  2. Veit jeg ekki vilja nú, vefjur orma haga, að flatmagir í fleti þú fram á miðja daga.
  3. Hefja máttu hljóð á ný, hauðurs skemmta konum, söngva færðu efni í Íslands Þjóðsögonum.
  4. Einkanlega óskum vér, að þú söngvum beitir fyrir sólar síkja ver, sem að Gísli heitir.
  5. Settu þig á hendi hans. hæglátur í næði, svo við eyra sæmdar manns syngdu Grámanns kvæði.
  6. Hann jeg ljóðin hirða bið; handar- geymir -fanna veikan þiggi vísna klið, verðugastur manna.
  7. Eigir þú með barkann bágt bragi fram að keyra, snígtu út á einhvern hátt ögn af Kvásis dreira.
  8. Láttu hvern, sem hlíðir á, hressa söngva nýja, en ekki skaltu elta þá undan þér sem flýja.
  9. Þessi ráðin þér eg gef, þarf ei fleira tala, fæ mér penna blek og bréf og bið þig nú að gala.
  10. Formálann jeg fella vil; foldin bráins leira girnist fremur, get jeg til, Grámanns sögu að heyra.

  1. Af kóngi einum kynna má, kvæða fyrst í safni, histórían hans þó frá hermir ekki nafni.
  2. Eðalborna auðar sól átti stýrir lýða; honum klæða eykin ól eina dóttur fríða.
  3. Skjöldung lætur skatna þá skemmu fagra smíða; þar skal veglegt fóstur fá foldin linna hlíða.
  4. Listir allar lærði þar liljan orma fróna; kurteisustu konurnar klæða freyju þjóna.
  5. Sikling heima sat í ró, sinna gætti búa; mikinn átti mundar snjó, en meiri hjarða-grúa.
  6. Skammt í burt frá höllu hans, hagsæld gæddur minni, aldur-hníginn brjótur brands bjó með konu sinni.
  7. Áttu hjónin eina kú öðrum kosta meiri, sagan þeim ei nefnir nú neina gripi fleiri.
  8. Einhvern dag, sem opt við bar, aldinn hirðir geira kreika réð til kirkjunnar, kenning prests að heyra.
  9. Heyrir bóndi helgan prest hreifa tölu sinni, er þá ræðu efnið mest út af gjafmildinni.
  10. Bóndi þenur eyrun öll út við slíkum greinum; streymdu tára fossa-föll fram af hvarma-steinum.
  11. Þegar messan úti er, af þeim mannfundonum karlinn heim í kotið fer; kerling fagnar honum.
  12. Var nú kröptug kenningin? kerling spurði manninn; all-vel lætur yfir hinn, og enda svarar þannin:
  13. Klerkur þar um kenndi öld, krapti andans hlaðinn, að þeir sem gefa, þúsundföld þiggi laun í staðinn.
  14. Eg vil gefa okkar kú, engin verður skaðinn; trúðu mér, að þá fær þú þúsund kýr í staðinn.
  15. Þegar fengið þetta er þarf um skort ei klaga, aldrei brestur okkur smér alla lífsins daga.
  16. Æði mikið er nú sagt, eykin mælti spanga, þú í orðin þessi lagt þýðing hefir ranga.
  17. Heimskingja mig heldur þú, hjalar skjóma viður; þrættu hjónin þar um nú þótti báðum miður.
  18. Daginn eptir seggur sá safnar manna grúa, fjós lét byggja firða þá fyrir þúsund kúa.
  19. Aptra vildi heimsku hans hringa- öldruð -freyja, en alvarlegur brjótur brands beiddi snót að þegja.
  20. Byggingin þá búin er, baldur orma túna fer að velta fyrir sér, hver fá nú skuli kúna.
  21. Engan vissi þegninn þar, þúsund kýr sem átti, nema ef það niflung var, sem nú bezt launa mátti.
  22. Finna samt ei þorði þann, þegninn rausnar gildi, annað ráð því hugsar hann, hitta prestin vildi.
  23. Klerkurinn skal kúna fá, kvistur mælti spanga, veit jeg orðum sínum sá sízt á bak mun ganga.
  24. Karl af stað með kúna fer, kátur mjög í geði; en kerlingin, sem angráð er, engu við hann réði.
  25. Leikur nú í lyndi flest lundi orma túna: halur finnur helgan prest, og honum gefur kúna.
  26. Helgur spurði herra þá, hverju þetta sæti; hinn því sanna hermir frá með hjartanlegri kæti.
  27. Bregður presti þá við það, þurt og kallt nam svara, að hefði orð sín hártogað hirðir mundar skara.
  28. Halinn fyrir heimsku nú hann ávíta tekur; að því búnu karl og kú klerkur frá sér rekur.
  29. Ferðin ekki gerðist greið, gamall korða-raptur hálf-kjökrandi heim á leið hélt með kúna aptur.
  30. Ekki betur tekst þó til, tjörgu hrjáðum njörði, niða-myrkurs norðan-byl nú á karlinn gjörði.
  31. Frost og dimma fylgdu þá, fjúk og bylja-veður; veslings karlinn vegum frá villist kúna meður.
  32. Bóndi hugarsjúkur sér, sig um vefur háski; kýrin muni krókna hér, og karlinn líka má ski.
  33. Í því sama sér hann mann sér á móti þoka, upp á sínum herðum hann hefur stóran poka.
  34. Sá nýkomni brjótur brands bóndann spurði núna, hvernig stæði á högum hans, hér á ferð með kúna.
  35. Karlinn hér við klökkna vann, kafinn þrauta banni, sína rauna-sögu hann sagði komumanni.
  36. Ílla staddur ertu nú, orðum hinn nam flíka; kýrin drepst, og kann ske þú króknir sjálfur líka.
  37. Betra væri, bóndi, þér, baulu mér að selja fyrir sekkinn, sem jeg ber, svo þig píni ei helja.
  38. Er þá heldur nokkru nær, að náir byggðum þínum; ket og bein þú fundið fær í fullum poka mínum.
  39. Hvað sem tala hér um meir hann og bónda maður, kaup út gera þessi þeir, þá varð karlinn glaður.
  40. Kaupanautinn kveðja vann karl, og móður þjóra; að því búnu heldur hann heim með pokan stóra.
  41. Konu sinni, kominn heim, kaupin segja mundi, all-vel lætur yfir þeim, en ílla líkar sprundi.
  42. Hann nam biðja hringa-slóð hrinda sorg, ef geti, setja pottinn sinn á glóð, og sjóða ögn af keti.
  43. Hjarta-glöð varð húsfreyjan, hátt nam prísa Drottinn; því næst bera vífið vann vatn í stærsta pottinn.
  44. Honum rygar hlóðin á, hér næst fer að sjóða; en karlinn vildi kátur ná kjöti úr sekknum góða.
  45. Í því pokinn opinn lá, eldsins nærri glæðum, maður hljóp úr honum þá hulinn gráum klæðum.
  46. Niðurlag er minnst í mér, mælti sá, og glotti, eitthvað sjóðið annað þér í þeim stóra potti.
  47. Húsráðandinn hissa stóð, horfði á gráa manninn; en afar-reið varð auðar slóð, orðin byrjar þannin:
  48. Þar er komin þín forsjá, þunga neyð vér könnum, kúna drógstu fyrst mér frá, og fjölgar síðan mönnum.
  49. Allri björg við erum svipt, öll er heill úr ranni; íllt er að vera örgum gipt al-vitlausum manni.
  50. Halurinn svarar hringa brú hrakyrðum í bræði; rosknu hjónin rifust nú rausnarlega bæði.
  51. Grámann biður, hætti hér, hrund og njótur fleina; jeg skal, segir hann, sjálfur mér sækja fylli eina.
  52. Voru lífi óhætt er, allt mun fara í lagi, en skamman tíma þrífizt þér á þessu ljóta jagi.
  53. Út í myrkrið einn svo fer, aptur kom hinn slægi, leiðir nú við síðu sér sauð í vænna lagi.
  54. Þarna er sauður, hjalar hann, og hjónum bauð að skera, það ei bóndi þora vann, þó varð slíkt að gera.
  55. Þau svo góða fylli fá, feittu vanga grannan; og nær þrýtur sauður sá, sótti Grámann annan.
  56. Hann þeim færði björg og brauð, bús-aðdrátta góður; þriðja, fjórða og fimmta sauð fleina sótti rjóður.
  57. Fyrir hendi nóg var nú, neitt ei þótti bresta; öll þau saman undu þrjú í yfirlæti bezta.
  58. Þeim um stundir flý eg frá, fellur niður staka; sígur blundur augun á, út er liðin vaka.

2. ríma.

Hálfdýrt stikluvik.

  1. Hita rínar hrundin svinn hlíði smíði ljóða; rámur gínars rjúpkarinn röddu brínir annað sinn.
  2. Vorkun, bræður, veitið mér, þó verði stirður bragur; glepur kvæði glaumur hér, gott um næði sjaldan er.
  3. Lítt mun tjá að tala um það, tíminn bíður ekki, suðra má jeg súða-glað sögu Grámanns víkja að.

  1. Hné við það mín hróðrar skrá, heima Grámann situr; sauða maður, sjóla hjá, sér nú skaðann fénu á.
  2. Heim að skjöldungs höllu fer, honum tjónið sagði, mána öldu mælti ver, af manna völdum skeð það er.
  3. Kóngur ynnir, eg það má ei svo búið hafa, nýkominn mun seggur sá sem að vinnu æfir þá.
  4. Í nágranna húsum hér hygg eg segginn vera; finndu hann, og færðu mér, fylgi manna skari þér.
  5. Höldar skunda höllu frá, hvata leitum víða; linna grunda gautar þá Grámann fundu karli hjá.
  6. Hægra varð í huga þeim, hann þá finna máttu, kappar harðir kalla beim kóngs á garðinn með sér heim.
  7. Síðan karl og refla reim reynir fleina kveður, bjóst til hallar þá með þeim, þjáir varla ótti beim.
  8. Hjóna greyin, sem það sjá, sáran bera kvíða, meintu sveigir mækja þá mundi deyja gálga á.
  9. Sprund og karl með grátið geð gylfa bölva liði; en kóngs til hallar köppum með kátur lalla Grámann réð.
  10. Fyrir konung færður var freirinn geira kátur; brátt að vonum buðlung snar byrjar svona ræðurnar:
  11. Þú munt vera þjófur sá, er þjáði sauði mína; segðu mér nú satt þar frá, sök hvort þér eg gefa má.
  12. Grámann segir: svo er víst, sauða dauða eg olli, verkið eigi vont mér lízt, vesæll beygir ótti sízt.
  13. En hvers vegna? tiggi tér; trúa þó víst máttu, að slíku hegna hljótum vér;— hinn svo gegna aptur fer:
  14. Sultar nauða kenndu keim karl og þöllin hringa, þangað sauði hafði eg heim, hungurs dauða að forða þeim.
  15. Hér er mesti munur á, meiri en vera ætti, ekkert brestur yður hjá, en þau verstu kvalir þjá.
  16. Býsna ljót er breytni sú, betra met jeg vera, að karlinn njóti þess, sem þú þarft ei hót að brúka nú.
  17. Djarfur var í svörum sá sekur mækja njótur; hilmir starir hissa á handar skara njótinn þá.
  18. Þig hinn mesta þjóf eg finn, þylur sjóli reiður, er sú versta aðferðin eini og bezti starfinn þinn?
  19. Einn fimm vetra uxa hér á jeg, tjáir sjóli, flestum betri, feitur er, falla ket hans mundi þér.
  20. Þegar skæra seggir sjá sól á bóli skýja, mínir kæru þegnar þá þennan færa skóginn á.
  21. Lát oss þínar listir sjá, ljóst á næsta degi, þessum mínum þjóri frá þegnum fínum skaltu ná.
  22. Takist eigi þetta þér, þú skalt fá að hanga, svo skilja megi skjóma grér, skortir þeigi gálga hér.
  23. En ef baldur álma má áður téðan bola lokka skjalda lundum frá, lífi halda færðu þá.
  24. Grámann tjáir: ófært er yðar boði að hlíða, þungu spáir þankinn mér;— því næst sá í burtu fer.
  25. Síðan dragnar halur heim, hjónin vinalega kærum fagna komu beim, kæti magnast báðum þeim.
  26. Þegar sveipar sólin há svæði fríðum ljóma, tekur reipi seggur sá, síðan hleypur skóginn á.
  27. Þar sem hinna leið um lá, lundur mundar jaka, tré nam finna, tók hann þá tagl, og sinn um hálsinn brá.
  28. Upp sig hengir í þeim stað, er nú hér sem dauður; konungs mengi kom nú að, kátir drengir litu það.
  29. Grámann þekkja, þegar sjá þeir, og svörum beita: fleiri hrekkjað hefir sá, hér því rekkur drepast má.
  30. Þarna allur er Grámann, áður ráða slægur; ei þarf karl að óttast þann, uxan varla tekur hann.
  31. Sínar leiðir svæði á síðan lýðir fara; rýta meiður rekka sá, og reipið greiðir trénu frá.
  32. Eptir sveimar ýtum hér eina leyni-götu; þannig beimur frækinn fer fram hjá þeim, svo enginn sér.
  33. Odda lestir eyk þar sá ýta götu nærri, upp sig festir aptur þá; ekki brestur ráðin kná.
  34. Kóngs menn bráðum komið fá kátir, nautið meður; meir en áður undrast þá, er þeir náðu manninn sjá.
  35. Einn svo tjá við annan fer: undur myndu þykja, klæða-gráa halinn hér hengdan sjáum aptur vér.
  36. Hér er annar fífu freyr með föt og litinn sama; vera kann, að þegnar þeir, Þunds um svanna flakki tveir.
  37. Finnum gráa vominn vér, við sem áður skildum, látum sjá hvað um hann er, uxan fáum bundið hér.
  38. Þetta gerir þjóðin kná, þaðan hraðar ferðum, ljósa hvera lundi frá, leiti ber á milli þá.
  39. Allir branda álfar þá úr augsýn dragast náðu, linna strandar lundur sá leysir bandið hálsi frá.
  40. Síðan halur hvötum fót heim að sveimar koti, meður alinn himinn hrjót, hittir valinn karl og snót.
  41. Skjóma eyðir skipar þá, skuli halur gamli bola deyða, og belg af flá, bauga heiðin styrkja má.
  42. Kerti lætur klóta ver knár úr mörnum steypa; mikil kæti í koti er, kerling æti nóg fram ber.
  43. Konungs manna minnast ber, máttu þreyttir leita, funa hrannar freyrarner fundu ei þann, sem hengdur er.
  44. Blinds um sprund ei biðu par, til baka kvikast venda, korða lundar koma þar kusi bundinn fyr sem var.
  45. Grámann finna hvergi hér heldur, skjalda viðir; og kálfurinn, sem kosti ber, köppum stinnum horfinn er.
  46. Sjá nú hvað í efnum er, allir þöllar geira; dauð-skelkaðir höldar hér heim í staðinn flýta sér.
  47. Sjóla mætum segja frá sínum rauna-förum; orða-gætinn gylfi þá Grámann lætur kalla á.
  48. Stalstu eigi, kóngur kvað, kálfi sjálfur mínum? íra-sveigir upp á það orð til hneigir svo lagað:
  49. Lífi forða hlaut jeg hér, og hlíða boði sjóla; sekur orðinn eg því er í uxa-morði, vitið þér.
  50. Gegna honum fylkir fer: frið og grið þú hlýtur, ef rænir svona, rýta ver, rekkvoðunum undan mér.
  51. Þetta enginn megna má maður, kvað hinn grái; í garðinn þengils fetað fá fæstir drengir nóttu á.
  52. Fyrir sjáðu, fylkir tér, ferð og gjörðum þínum; en vís er bráður bani þér baugs ef ráði mistekst hér.
  53. Skjótt með þeim svo skilja vann, skjöldung hvíldir tekur, en Grámann heim í garðshorn rann gætir seima hjónin fann.
  54. Karl og seljan klæða grá klóta njóti fagna, þóttust helju heimta frá handar- jelja -njótinn þá.
  55. Sína tjáir seggur þraut, er sjóli á hann lagði; biður þá að gjöra graut gamla bráins dínu laut.
  56. Gulls það sólin gjöra má, grautinn heita síðan lét í skjólu, og lok þar á, lundur kjóla tekur þá.
  57. Gylfa heim að garði með grautar-fötu sína hér næst beimur halda réð, hlyni seima slægð er léð.
  58. Inn nam skríða, og fylgsni fann, felast vel hvar mátti;— borgar-lýður, list sem ann, læsa síðan hliðum vann.
  59. Húmið bráðum hylur völl, hann þess vann að gæta; gekk til náða grams í höll gætir láða, og hirðin öll.
  60. Fór hann því að flögra sér fötu tetrið meður; gekk um býinn geira ver, grams að hlýju rúmi fer.
  61. Klæða undir varma var víf og hlífa njótur; fylkir blundinn festi þar faðmi bundinn drottningar.
  62. Kóngs að læðist kvílu þá, ketti léttstígari, yfir-klæðum af réð ná, all-gott næði hefir sá.
  63. Lék á stillir, læðinn þar, lætur grautinn drjúpa, klóta spillir klækja snar, konungs milli og drottningar.
  64. Hjónin síðan ofan á eyðir breiðir stála, í horn eitt skríður hann þeim frá; —hringa fríður vaknar þá.
  65. Finnur klæða foldin skjót fötin ötuð vera; sú ógæða leðjan ljót laugar bæði kóng og snót.
  66. Leizt nú svanna ekki á, orð ei þorði tala, vekur manninn víra gná, vellur hann í grautnum þá.
  67. Loks upp herti svarið sitt, svanni, manninn viður, hvernig ertu, hjartað mitt, hefirðu gert í rúmið þitt?
  68. Svörum reiður buðlung brá bauga heiði viður: hafðu ei leiða heimsku þá, hefð sem eyða vorri má.
  69. Minn það háttur ekki er, að ata fötin svona; keim ósmátt í klæðum hér, kenna máttu sjálfri þér.
  70. Sjóli og flæðar sunnu gná sængur klæðin þrífa, sér í bræði fleygja frá, fussa bæði og sveija þá.
  71. Mundar skara mörkin þá, meður blíðu hótum, enga spara íþrótt má, aptur hara sátt að ná.
  72. Síðan nýta svefninn fá sjóli og kjóla freyja; Grámann þytur fylgsni frá, fötin brýtur saman þá.
  73. Svo út læðist sömu stund, — síður bíða vildi —, heim með klæðin hélt um grund, hittir bæði karl og sprund.
  74. Letin bindur hug og hönd, húmið skímu eyðir; því skal blindviðs þóptu önd þagnar synda upp á strönd.

3. ríma.

Frumhenda.

  1. Nú skal binda enda á óðar vessa-smíði; silfur linda siðug gná söngvum þessum hlíði.
  2. Bauga þöllin brátt mun sjá bónda þjóninn gráa, kominn öllum kröggum frá kóngs á tróninn háa.
  3. Æfitíðir auðnan brátt yndisligri gefur, vizkan fríða þannig þrátt þrautir sigrað hefur.
  4. Hroki varla hlýta kann hennar vegi móti; tíðum falla frekja vann fyrir eigin spjóti.
  5. Ama hríð og þunga þrá þó vér hljótum reyna, kemur tíðum eptir á inndæl bótin meina.

  1. Þar jeg sagnir aptur el elda hrannar línum, hjónin fagna virkta vel vinnumanni sínum.
  2. Klæða brekku fötin fær freyrinn káti hlífa, vill að rekkjuvoðir þær vífið láti þrífa.
  3. Minnist kvæði öðling á, aptur hann nú vaknar, rínar glæðu runnur þá rekkvoðanna saknar.
  4. Sakamanninn sömu stund sjóli fljótt lét kalla; kemur hann á fylkis fund, feiminn þótti varla.
  5. Hilmir segir: hermdu brátt, horfinn gæðum fínum, stalstu eigi, sviptur sátt, sængur klæðum mínum?
  6. Kenna skyldu menn það mér, mælti skífir korða, boði mildings hlítt var hér, hlaut jeg lífi forða.
  7. Færðu náðir, fylkir tér, frægða þrotni klunni, ef stelur, áður morgnar, mér meður drottningunni.
  8. Herra góður, hinn svo fer hjalið lengja betur, það ei bjóða megið mér sem maður enginn getur.
  9. Gefur svörin hastur hinn: heppnist þetta ekki færðu snöru faðmlögin fyrir prett og hrekki.
  10. Komdu þér í kotið heim, kvistur sjóar funa; eptir mér og auðar reim áttu þó að muna.
  11. Grámann hlíðir hilmis raust, heim nam þegar dragna; hjónin blíðu hræsnis laust hjartanlega fagna.
  12. Fleira lék á fylkir lands fleina þollur séður, hattinn tekur húsbóndans háa kollinn meður.
  13. Ráða slingur brjótur brands beztu skríðist fötum, hann út stingur húsbóndans hattinn víða götum.
  14. Kusa feitis kertin há kappinn snjalli tekur, með þeim hneita hirðir þá hattinn allan þekur.
  15. Búkinn allan eins hann bjó áður hjón við skilur; nú til hallar niflungs dró, nótt þá frónið hylur.
  16. Belginn þann af bola fló, bragða kunnur drengur, með sér hann í hendi dró, að hof-kirkjunni gengur.
  17. Opnar hana, inn sér brá örfa þórinn mætur, birðar grana baldur þá belg í kórinn lætur.
  18. Kveikir sínum kertum á kappinn hrósi gæddur, allur skín sem engill þá, er nú ljósi klæddur.
  19. Klukkum síðan hringir hér, hljóðið tiggja vekur, gylfi fríðan glansa sér, og glöggt að hyggja tekur.
  20. Tiggi landa, og trafa rind, trúar styrking hlýtur, alskínandi engils mynd út við kirkju lýtur.
  21. Fljóð og þengil fund á hans fýsti í skyndi vitja, hugðu engil himna-ranns helg erindi flytja.
  22. Beztu klæðum buðlung því bjóst og hrundin spanga, síðan bæði auðmýkt í á engils fundinn ganga.
  23. Flöt á jörðu féllu þá, fylltist sinnið trega, bæna gjörðir, bezt sem má, byrja innilega.
  24. Streyma hvarma steinum frá straumar votir kinna, auðmjúk harma og óska fá aflausn brota sinna.
  25. Þannig blíð með blauta kinn beiddu af heitu geði, unz um síðir engillinn andsvör veita réði:
  26. Hrindið vinir hugar þrá, hann svo réði tala, altarinu eg skal hjá ykkar geði svala.
  27. Hjónin æði harmþrungin hírna fóru á vanga, elta bæði engilinn, inn í kórinn ganga.
  28. Komin þegar eru inn öðling dýr og svannin, alvarlegur engillinn orðum stýrir þannin:
  29. Ef þið gæði girnizt fá guðs og helgra lýða, skuluð bæði þarna þá þið í belginn skríða.
  30. Ánægð hlíða hjónin því, hverfa náði ótti, bæði skríða belginn í; — batna ráðið þótti.
  31. Engil-myndin, sem það sá, siðinn stundar pretta, fyrir bindur belginn þá; — buðlung undrar þetta.
  32. Spyr hvað valdi háttum hans hari og nista rósin; gefur skjalda ullur ans og af sér hristir ljósin:
  33. Jeg er ekki engill neinn, örfa tjáir beitir, hér má þekkjast sjóla sveinn, sem að Grámann heitir.
  34. Litla Grámann blíðu bjó, belg ófríðan skekur, gylfa þá um gólfið dró; greina síðan tekur:
  35. Stal jeg þér á nóttu nú (nauðum þarf ei kvíða) eins og mér bauðst áður þú, ullur djarfi skíða.
  36. Kvittun synda fylkir fær, þó fylgi lotning minni, þér jeg hryndi helju í klær hér með drottning þinni.
  37. Engin veitist útlausn þér, öðling drótta stinni, nema heitir, hari, mér henni dóttur þinni.
  38. Fylgi síkja bráins bil báleygs frú og auður, hálft jeg ríkið hafa vil, og heilt, nær þú ert dauður.
  39. Flestir kjósa firðar líf, fylkir kvað svo móður, þín skal drós og viðris víf verða, maður góður.
  40. Hét með eyði nála ná, (nóg var mága blíðan!) belgnum leiða ljúfur frá leysti Grámann síðan.
  41. Þá út skríða þengill nam þylju seima meður, hneigði síðan Grámann gram, gengur heim og kveður.
  42. Heima finnur hjónin þar, hamnum sviptur engils, seggur ynnir svo sem var sín viðskipti og þengils.
  43. Orða drjúgur einnig tér ullur harði kjóla: héðan búast hljótið þér heim að garði sjóla.
  44. Hlíða bæði hissa á, hugur gleymist sorgar, skrýðast klæðum skástu þá, skunda heim til borgar.
  45. Fyrir búin veizla var, vefjan sókt er kjóla; Grámann nú, sem gæfu bar, giptist dóttur sjóla.
  46. Linna sýki veitast vann, við sem kjóla gleður, tók við ríki hálfu hann hringa sólu meður.
  47. Skötnum þá til skemmtunar skjöldungs glæstur líki segir frá, að son hann var sjóla úr næsta ríki.
  48. Hér á grund jeg hafði bið, hirðir brynju tjáði, nokkra stund, og svo um sið seggi skynja náði.
  49. Heimsku verkin heyrði eg ný húss er ráður framdi, jeg og klerkur þengils því þessi ráðin samdi.
  50. Jeg í ranni þenkti þar, þegni hjá og brúði, klerks að sanna kenningar, karlinn á sem trúði.
  51. Seggjum nú jeg sýnt það tel, sjóli spjalla náir, að þúsund kúa virði vel veslings karlinn fái.
  52. Veizlan líður — sikling sá sinna valda gáði; nokkru síðar falla frá, fylkir aldinn náði.
  53. Yggs tók brúði alla þá, ungur stýrir lýða; klæða þrúði þengill hjá þáði hýru blíða.
  54. Búandann og beðju hans brast hið minnsta eigi, þau nam annast lofðung lands lífs að hinnsta degi.
  55. Víkinganna vondri þjóð, vopna snar á fundi, stökkti hann með herjans glóð hnikuðar frá sprundi.
  56. Meður óma bálið bjart, baldur harði skíða, veður skjóma háði hart, hauðrið varði fríða.
  57. Stýrði lýðum lengi sá laufa kvistur snari, og um síðir, ár við há, anda missti hari.

  1. Þjóðarsögnin enduð er um þær brellur garpa; óðar gögnin minka mér, mærðar fellur harpa.
  2. Greina safni óðar í, ullur jarðar linna, leyna nafni þenkir því, þar um varðar minna.
  3. Beztra dáða gæddur gnægð Gísli Bjarna alinn, flestra náða hljóti hægð, og Hleiðólfs tjarna valinn.
  4. Hirði letur mærðar-máls, minning taki góða, virði betur frændi frjáls, frægstra maki þjóða.
  5. Krýnist sóma hæztum hýr hafnar glóða viður; týnist óma drykkur dýr, dofnar ljóða kliður.
  6. Góma-falur móður minn mun ei bætur gera. Óma valur sönginn sinn svona lætur vera.





End of Project Gutenberg's Rímur af Grámanni í Garðshorni, by Jón Hjaltason

*** END OF THIS PROJECT GUTENBERG EBOOK RÍMUR AF GRÁMANNI Í GARÐSHORNI ***

***** This file should be named 22137-h.htm or 22137-h.zip *****
This and all associated files of various formats will be found in:
        http://www.gutenberg.org/2/2/1/3/22137/

Produced by Jóhannes Birgir Jensson

Updated editions will replace the previous one--the old editions
will be renamed.

Creating the works from public domain print editions means that no
one owns a United States copyright in these works, so the Foundation
(and you!) can copy and distribute it in the United States without
permission and without paying copyright royalties.  Special rules,
set forth in the General Terms of Use part of this license, apply to
copying and distributing Project Gutenberg-tm electronic works to
protect the PROJECT GUTENBERG-tm concept and trademark.  Project
Gutenberg is a registered trademark, and may not be used if you
charge for the eBooks, unless you receive specific permission.  If you
do not charge anything for copies of this eBook, complying with the
rules is very easy.  You may use this eBook for nearly any purpose
such as creation of derivative works, reports, performances and
research.  They may be modified and printed and given away--you may do
practically ANYTHING with public domain eBooks.  Redistribution is
subject to the trademark license, especially commercial
redistribution.



*** START: FULL LICENSE ***

THE FULL PROJECT GUTENBERG LICENSE
PLEASE READ THIS BEFORE YOU DISTRIBUTE OR USE THIS WORK

To protect the Project Gutenberg-tm mission of promoting the free
distribution of electronic works, by using or distributing this work
(or any other work associated in any way with the phrase "Project
Gutenberg"), you agree to comply with all the terms of the Full Project
Gutenberg-tm License (available with this file or online at
http://gutenberg.org/license).


Section 1.  General Terms of Use and Redistributing Project Gutenberg-tm
electronic works

1.A.  By reading or using any part of this Project Gutenberg-tm
electronic work, you indicate that you have read, understand, agree to
and accept all the terms of this license and intellectual property
(trademark/copyright) agreement.  If you do not agree to abide by all
the terms of this agreement, you must cease using and return or destroy
all copies of Project Gutenberg-tm electronic works in your possession.
If you paid a fee for obtaining a copy of or access to a Project
Gutenberg-tm electronic work and you do not agree to be bound by the
terms of this agreement, you may obtain a refund from the person or
entity to whom you paid the fee as set forth in paragraph 1.E.8.

1.B.  "Project Gutenberg" is a registered trademark.  It may only be
used on or associated in any way with an electronic work by people who
agree to be bound by the terms of this agreement.  There are a few
things that you can do with most Project Gutenberg-tm electronic works
even without complying with the full terms of this agreement.  See
paragraph 1.C below.  There are a lot of things you can do with Project
Gutenberg-tm electronic works if you follow the terms of this agreement
and help preserve free future access to Project Gutenberg-tm electronic
works.  See paragraph 1.E below.

1.C.  The Project Gutenberg Literary Archive Foundation ("the Foundation"
or PGLAF), owns a compilation copyright in the collection of Project
Gutenberg-tm electronic works.  Nearly all the individual works in the
collection are in the public domain in the United States.  If an
individual work is in the public domain in the United States and you are
located in the United States, we do not claim a right to prevent you from
copying, distributing, performing, displaying or creating derivative
works based on the work as long as all references to Project Gutenberg
are removed.  Of course, we hope that you will support the Project
Gutenberg-tm mission of promoting free access to electronic works by
freely sharing Project Gutenberg-tm works in compliance with the terms of
this agreement for keeping the Project Gutenberg-tm name associated with
the work.  You can easily comply with the terms of this agreement by
keeping this work in the same format with its attached full Project
Gutenberg-tm License when you share it without charge with others.

1.D.  The copyright laws of the place where you are located also govern
what you can do with this work.  Copyright laws in most countries are in
a constant state of change.  If you are outside the United States, check
the laws of your country in addition to the terms of this agreement
before downloading, copying, displaying, performing, distributing or
creating derivative works based on this work or any other Project
Gutenberg-tm work.  The Foundation makes no representations concerning
the copyright status of any work in any country outside the United
States.

1.E.  Unless you have removed all references to Project Gutenberg:

1.E.1.  The following sentence, with active links to, or other immediate
access to, the full Project Gutenberg-tm License must appear prominently
whenever any copy of a Project Gutenberg-tm work (any work on which the
phrase "Project Gutenberg" appears, or with which the phrase "Project
Gutenberg" is associated) is accessed, displayed, performed, viewed,
copied or distributed:

This eBook is for the use of anyone anywhere at no cost and with
almost no restrictions whatsoever.  You may copy it, give it away or
re-use it under the terms of the Project Gutenberg License included
with this eBook or online at www.gutenberg.org

1.E.2.  If an individual Project Gutenberg-tm electronic work is derived
from the public domain (does not contain a notice indicating that it is
posted with permission of the copyright holder), the work can be copied
and distributed to anyone in the United States without paying any fees
or charges.  If you are redistributing or providing access to a work
with the phrase "Project Gutenberg" associated with or appearing on the
work, you must comply either with the requirements of paragraphs 1.E.1
through 1.E.7 or obtain permission for the use of the work and the
Project Gutenberg-tm trademark as set forth in paragraphs 1.E.8 or
1.E.9.

1.E.3.  If an individual Project Gutenberg-tm electronic work is posted
with the permission of the copyright holder, your use and distribution
must comply with both paragraphs 1.E.1 through 1.E.7 and any additional
terms imposed by the copyright holder.  Additional terms will be linked
to the Project Gutenberg-tm License for all works posted with the
permission of the copyright holder found at the beginning of this work.

1.E.4.  Do not unlink or detach or remove the full Project Gutenberg-tm
License terms from this work, or any files containing a part of this
work or any other work associated with Project Gutenberg-tm.

1.E.5.  Do not copy, display, perform, distribute or redistribute this
electronic work, or any part of this electronic work, without
prominently displaying the sentence set forth in paragraph 1.E.1 with
active links or immediate access to the full terms of the Project
Gutenberg-tm License.

1.E.6.  You may convert to and distribute this work in any binary,
compressed, marked up, nonproprietary or proprietary form, including any
word processing or hypertext form.  However, if you provide access to or
distribute copies of a Project Gutenberg-tm work in a format other than
"Plain Vanilla ASCII" or other format used in the official version
posted on the official Project Gutenberg-tm web site (www.gutenberg.org),
you must, at no additional cost, fee or expense to the user, provide a
copy, a means of exporting a copy, or a means of obtaining a copy upon
request, of the work in its original "Plain Vanilla ASCII" or other
form.  Any alternate format must include the full Project Gutenberg-tm
License as specified in paragraph 1.E.1.

1.E.7.  Do not charge a fee for access to, viewing, displaying,
performing, copying or distributing any Project Gutenberg-tm works
unless you comply with paragraph 1.E.8 or 1.E.9.

1.E.8.  You may charge a reasonable fee for copies of or providing
access to or distributing Project Gutenberg-tm electronic works provided
that

- You pay a royalty fee of 20% of the gross profits you derive from
     the use of Project Gutenberg-tm works calculated using the method
     you already use to calculate your applicable taxes.  The fee is
     owed to the owner of the Project Gutenberg-tm trademark, but he
     has agreed to donate royalties under this paragraph to the
     Project Gutenberg Literary Archive Foundation.  Royalty payments
     must be paid within 60 days following each date on which you
     prepare (or are legally required to prepare) your periodic tax
     returns.  Royalty payments should be clearly marked as such and
     sent to the Project Gutenberg Literary Archive Foundation at the
     address specified in Section 4, "Information about donations to
     the Project Gutenberg Literary Archive Foundation."

- You provide a full refund of any money paid by a user who notifies
     you in writing (or by e-mail) within 30 days of receipt that s/he
     does not agree to the terms of the full Project Gutenberg-tm
     License.  You must require such a user to return or
     destroy all copies of the works possessed in a physical medium
     and discontinue all use of and all access to other copies of
     Project Gutenberg-tm works.

- You provide, in accordance with paragraph 1.F.3, a full refund of any
     money paid for a work or a replacement copy, if a defect in the
     electronic work is discovered and reported to you within 90 days
     of receipt of the work.

- You comply with all other terms of this agreement for free
     distribution of Project Gutenberg-tm works.

1.E.9.  If you wish to charge a fee or distribute a Project Gutenberg-tm
electronic work or group of works on different terms than are set
forth in this agreement, you must obtain permission in writing from
both the Project Gutenberg Literary Archive Foundation and Michael
Hart, the owner of the Project Gutenberg-tm trademark.  Contact the
Foundation as set forth in Section 3 below.

1.F.

1.F.1.  Project Gutenberg volunteers and employees expend considerable
effort to identify, do copyright research on, transcribe and proofread
public domain works in creating the Project Gutenberg-tm
collection.  Despite these efforts, Project Gutenberg-tm electronic
works, and the medium on which they may be stored, may contain
"Defects," such as, but not limited to, incomplete, inaccurate or
corrupt data, transcription errors, a copyright or other intellectual
property infringement, a defective or damaged disk or other medium, a
computer virus, or computer codes that damage or cannot be read by
your equipment.

1.F.2.  LIMITED WARRANTY, DISCLAIMER OF DAMAGES - Except for the "Right
of Replacement or Refund" described in paragraph 1.F.3, the Project
Gutenberg Literary Archive Foundation, the owner of the Project
Gutenberg-tm trademark, and any other party distributing a Project
Gutenberg-tm electronic work under this agreement, disclaim all
liability to you for damages, costs and expenses, including legal
fees.  YOU AGREE THAT YOU HAVE NO REMEDIES FOR NEGLIGENCE, STRICT
LIABILITY, BREACH OF WARRANTY OR BREACH OF CONTRACT EXCEPT THOSE
PROVIDED IN PARAGRAPH F3.  YOU AGREE THAT THE FOUNDATION, THE
TRADEMARK OWNER, AND ANY DISTRIBUTOR UNDER THIS AGREEMENT WILL NOT BE
LIABLE TO YOU FOR ACTUAL, DIRECT, INDIRECT, CONSEQUENTIAL, PUNITIVE OR
INCIDENTAL DAMAGES EVEN IF YOU GIVE NOTICE OF THE POSSIBILITY OF SUCH
DAMAGE.

1.F.3.  LIMITED RIGHT OF REPLACEMENT OR REFUND - If you discover a
defect in this electronic work within 90 days of receiving it, you can
receive a refund of the money (if any) you paid for it by sending a
written explanation to the person you received the work from.  If you
received the work on a physical medium, you must return the medium with
your written explanation.  The person or entity that provided you with
the defective work may elect to provide a replacement copy in lieu of a
refund.  If you received the work electronically, the person or entity
providing it to you may choose to give you a second opportunity to
receive the work electronically in lieu of a refund.  If the second copy
is also defective, you may demand a refund in writing without further
opportunities to fix the problem.

1.F.4.  Except for the limited right of replacement or refund set forth
in paragraph 1.F.3, this work is provided to you 'AS-IS' WITH NO OTHER
WARRANTIES OF ANY KIND, EXPRESS OR IMPLIED, INCLUDING BUT NOT LIMITED TO
WARRANTIES OF MERCHANTIBILITY OR FITNESS FOR ANY PURPOSE.

1.F.5.  Some states do not allow disclaimers of certain implied
warranties or the exclusion or limitation of certain types of damages.
If any disclaimer or limitation set forth in this agreement violates the
law of the state applicable to this agreement, the agreement shall be
interpreted to make the maximum disclaimer or limitation permitted by
the applicable state law.  The invalidity or unenforceability of any
provision of this agreement shall not void the remaining provisions.

1.F.6.  INDEMNITY - You agree to indemnify and hold the Foundation, the
trademark owner, any agent or employee of the Foundation, anyone
providing copies of Project Gutenberg-tm electronic works in accordance
with this agreement, and any volunteers associated with the production,
promotion and distribution of Project Gutenberg-tm electronic works,
harmless from all liability, costs and expenses, including legal fees,
that arise directly or indirectly from any of the following which you do
or cause to occur: (a) distribution of this or any Project Gutenberg-tm
work, (b) alteration, modification, or additions or deletions to any
Project Gutenberg-tm work, and (c) any Defect you cause.


Section  2.  Information about the Mission of Project Gutenberg-tm

Project Gutenberg-tm is synonymous with the free distribution of
electronic works in formats readable by the widest variety of computers
including obsolete, old, middle-aged and new computers.  It exists
because of the efforts of hundreds of volunteers and donations from
people in all walks of life.

Volunteers and financial support to provide volunteers with the
assistance they need, is critical to reaching Project Gutenberg-tm's
goals and ensuring that the Project Gutenberg-tm collection will
remain freely available for generations to come.  In 2001, the Project
Gutenberg Literary Archive Foundation was created to provide a secure
and permanent future for Project Gutenberg-tm and future generations.
To learn more about the Project Gutenberg Literary Archive Foundation
and how your efforts and donations can help, see Sections 3 and 4
and the Foundation web page at http://www.pglaf.org.


Section 3.  Information about the Project Gutenberg Literary Archive
Foundation

The Project Gutenberg Literary Archive Foundation is a non profit
501(c)(3) educational corporation organized under the laws of the
state of Mississippi and granted tax exempt status by the Internal
Revenue Service.  The Foundation's EIN or federal tax identification
number is 64-6221541.  Its 501(c)(3) letter is posted at
http://pglaf.org/fundraising.  Contributions to the Project Gutenberg
Literary Archive Foundation are tax deductible to the full extent
permitted by U.S. federal laws and your state's laws.

The Foundation's principal office is located at 4557 Melan Dr. S.
Fairbanks, AK, 99712., but its volunteers and employees are scattered
throughout numerous locations.  Its business office is located at
809 North 1500 West, Salt Lake City, UT 84116, (801) 596-1887, email
business@pglaf.org.  Email contact links and up to date contact
information can be found at the Foundation's web site and official
page at http://pglaf.org

For additional contact information:
     Dr. Gregory B. Newby
     Chief Executive and Director
     gbnewby@pglaf.org


Section 4.  Information about Donations to the Project Gutenberg
Literary Archive Foundation

Project Gutenberg-tm depends upon and cannot survive without wide
spread public support and donations to carry out its mission of
increasing the number of public domain and licensed works that can be
freely distributed in machine readable form accessible by the widest
array of equipment including outdated equipment.  Many small donations
($1 to $5,000) are particularly important to maintaining tax exempt
status with the IRS.

The Foundation is committed to complying with the laws regulating
charities and charitable donations in all 50 states of the United
States.  Compliance requirements are not uniform and it takes a
considerable effort, much paperwork and many fees to meet and keep up
with these requirements.  We do not solicit donations in locations
where we have not received written confirmation of compliance.  To
SEND DONATIONS or determine the status of compliance for any
particular state visit http://pglaf.org

While we cannot and do not solicit contributions from states where we
have not met the solicitation requirements, we know of no prohibition
against accepting unsolicited donations from donors in such states who
approach us with offers to donate.

International donations are gratefully accepted, but we cannot make
any statements concerning tax treatment of donations received from
outside the United States.  U.S. laws alone swamp our small staff.

Please check the Project Gutenberg Web pages for current donation
methods and addresses.  Donations are accepted in a number of other
ways including checks, online payments and credit card donations.
To donate, please visit: http://pglaf.org/donate


Section 5.  General Information About Project Gutenberg-tm electronic
works.

Professor Michael S. Hart is the originator of the Project Gutenberg-tm
concept of a library of electronic works that could be freely shared
with anyone.  For thirty years, he produced and distributed Project
Gutenberg-tm eBooks with only a loose network of volunteer support.


Project Gutenberg-tm eBooks are often created from several printed
editions, all of which are confirmed as Public Domain in the U.S.
unless a copyright notice is included.  Thus, we do not necessarily
keep eBooks in compliance with any particular paper edition.


Most people start at our Web site which has the main PG search facility:

     http://www.gutenberg.org

This Web site includes information about Project Gutenberg-tm,
including how to make donations to the Project Gutenberg Literary
Archive Foundation, how to help produce our new eBooks, and how to
subscribe to our email newsletter to hear about new eBooks.